föstudagur, febrúar 29, 2008

Heimsins latasti bloggari

Það er alveg hellingur að gerast, eiginlega of mikið...

Og samt er ég ekki búin að skrifa neitt.

En ég get skýlt mér á bak við það að ég gat ekki komist inn á bloggið mitt í hinni tölvunni þar sem að hún slökkti alltaf á vafraranum þegar ég reyndi það.

Anyhow, hundafimifréttir : reglurnar hafa verið samþykktar *VEI* og erum við farnar að skipuleggja fyrsta mótið með almennilegum reglum. Nánar um það má sjá hér www.hundafimi.is

Það er sýning núna um helgina og eðli málsins samkvæmt er brjálað að gera hjá mér vegna hennar, er að sýna þó nokkra hunda og svona skemmtilegt.

Svo er alveg feikinóg að gera í skólanum og virðist ekkert ætla að hægjast á í því.

Og svo náttúrulega aðal fréttirnar

Ég er að sækja um að komast í dýralækninn í DK, þ.a. ef ég kemst inn þá flyt ég út í haust !!!

Bara svona ef ykkur langaði að vita það :P

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Vá frábært vonandi kemmstu inn skvísa...

og til hamingju með hundafimi fréttirnar allveg frábær árangur hjá ykkur dömunum...