Eða kanski frekar hræsnari. Ég er jú "stórra hunda" manneskja, allir mínir hundar hafa verið stórir og stæðilegir hundar, tjahh eða svona í stærra lagi og ég hef aldrei verið með svona "alvöru" smáhund. Kátína mín var lítil hundur, en hún var samt ekki svo lítill hundur.
En núna er ég komin með óvænta viðbót, samt ekki svo óvænta, á heimilið hjá mér hérna í baunalandinu. En Heiða nældi sér í litla tík sem ætlar að búa hjá mér þangað til hún má flytja heim, s.s. hana Sól, eða True and Trusty Ginger Spice.
Ég skellti mér í gær, eftir celluprófið mitt, með lest á papillon sýningu til að sækja hana. Fékk að hitta pabban, systkini, já og að horfa aðeins á litla klúbbsýningu hjá papillon klúbbnum. Svo skelltum við Sól okkur heim aftur. Og hérna kemur klysjuparturinn - ég ferðaðist með hana innan á úlpunni alla leiðina heim. Ég veit alveg að hún er hundur, og ég veit að hún hefur lappir, samt var bara aðeins of freistandi að halda á henni. Ég gerði þetta reyndar líka til að halda henni rólegri, enda var hún að segja skilið við fjölskyldu og systkini sín og vera alein í fyrsta skipti og var ekkert alveg sátt við það. En já, hún fékk að kúra sem þriðja brjóstið alla leiðina heim.
Annars er ég bæði búin með kemi prófið og cellubiologi prófið, og gæti ekki verið fegnari !! Þ.a. ég er aðeins komin upp á yfirborðið aftur eftir massífan lærdóm frá því í nóvember og get vonandi farið að gera eitthvað meira skemmtilegt. Planið er að skella sér á agility mót og hundasýningu í næsta mánuði þ.a. ég hef allavegana frá einhverju að segja.
Annars ætla ég að sýna ykkur hvað gerist þegar maður ætlar að taka mynd af hvolpi...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Oh sæta sæta, ég hefði sko líka haft hana inni á mér ;) hehe....svipurinn minnir mig pínu á Amber þegar ég fékk hana!
Var sýningin í Karlslunde hallen? ;)
By the way, bara fínustu myndir af henni :)
Vá hvað hún er sæt!!!!! Pappa hvolpar eru með því sætasta sem gerist, það er næstum að mig langar í annan, en bara næstum.... ;)
Zelda var einu sinni svona pínu lítil:
http://www3.hi.is/~iyo1/mappa/mappa/MOV00005.3gp
Já þetta litla dýr er sko hættulega sæt !!!
Sýningin var einhversstaðar rétt hjá Ringsted, næsta klúbbsýning er í Karlslund.
En já það er soldill svipur með henni og Amber, spurning hvort hún eigi eftir að verða svipuð á litinn :)
En ég var ekki alveg tilbúin undir það hvað þessir hvolpar eru óhugnanlega sætir !!!
Ylfa ég skil ekki hvernig er hægt að eiga papillon og fá sér ekki annan :p
Vá hvað hún er mikið krútt.
Ekki leiðinlegur félagsskapur sem þú ert komin með.
Næst þegar þú færð heimsókn þarftu að biðja um hjálp með standi myndir :)
Gangi þér vel með hana.
Kv. Jóna (Ástu Maríu mamma)
Skrifa ummæli