miðvikudagur, febrúar 11, 2009
Má ég kynna Snata
Jebbs, þetta er hann Snati minn... hissa ??
Ég stóðst ekki freistinguna að stríða fólkinu heima þar sem að ég fékk mjög sterk viðbrögð bæði frá Valda og mömmu þegar ég sagði þeim að ég væri að fara að kaupa mér hund. En þetta er s.s. Snati minn, sem m.v. stærð ætlar að vera Border Collie (ég á náttúrulega bara border collie hunda) en hann er ekki ræktunarhæfur vegna tannleysis og skorts á holdafari. En ef þú hélst að ég væri í alvörunni búin að kaupa mér annan hund, þá greynilega þekkiru mig ekki vel ;)
En að öðru, Sól dafnar og stækkar eins og hún fái borgað fyrir það. Hún er alveg að verða hinn fullkomni hundur, um leið og hún er orðin húshrein. En hún er ótrúlega mögnuð að öðru leiti, dótasjúk og sækir og skilar eins og herforingi. Hún er reyndar að fikra sig áfram við að þjálfa mig, með því að leika sér með dót á brúninni á rúminu, láta það detta í gólfið og bíða svo eftir því að ég taki það upp og hendi fyrir hana. Hún er sniðug þetta litla dýr !
Við stöllurnar skelltum okkur í miðbæinn til að kíkja á Kollu fyrir helgi og áttum stórgóðar stundir. Röltum í Christianíu og svo upp á Norreport og settumst á kaffihús og kjöftuðum og kjöftuðum, og kjöftuðum aðeins meira. Ég átti ekki alveg von á því að geta rölt með litla hvolpinn inn á fínt kaffihús og sest með hana til borð alveg eins og ekkert væri sjálfsagðara, en, ekkert var sjálfsagðara...
Við Sól á leiðinni með lestinni
Sól sofandi undir borði á kaffihúsinu, búin að liggja þarna í tæpa 2 tíma
Og svo er núna í augnablikinu snjór í baunalandinu, og vetur í Köben er tæpast hægt að kalla vetur, og það sama má segja um snjóinn.
Hræðilegt ekki satt. Ég hálf sakna þess að hafa ekki hnédjúpan snjó og vera í snjógalla og kuldaskóm og vera samt kalt. En Sól er sátt við snjóinn, í smá stunda í einu allavegana, þangað til að henni verður kalt. En hún hefur samt sem betur fer þessa snilldar ullarpeysu til að vera í svo henni verði ekki kalt.
En svona bara ykkur að segja þá verð ég að segja ykkur hvað hún er að gera akkúrat núna. Hún fann sér tappa af gosflösku og er að dunda sér við að drepa hann upp í rúmi, henda honum svo niðrá gólf, hlaupa og sækja hann og hlaupa aftur upp í sófa. Rosalega gaman að vera hún !
En það er eitthvað farið að týnast inn af niðurstöðum úr prófum, og ég fékk að vita að þar sem að ég stóðs Kemi þá fæ ég extra langt páskafrí ! Svo er bara að bíða eftir hinum niðurstöðunum, spennó !
En ný blokk er byrjuð, og hún er ekkert lítið spennandi, við erum í krufningum og læti. Ég á bunch af myndum af því en ég hugsa að ég láti það eiga sig að setja þær á netið, margt til geðslegra fyrir þá sem hafa ekki áhuga á þessu eins og ég ;)
Svo stefnir í vægast sagt skemmtilegan mánuð núna, hundasýning í Fredericia um helgina sem við ætlum að kíkja nokkrar saman á, Valdi kemur svo í næstu viku (mig hlakkar SVOOO til), sveitaball í Köben með Á Móti Sól, agility mót alla næstu helgi og bara læti. Brjálað að gera s.s. En ég er því miður ekki að sjá að ég geti kíkt á klakann yfir sýninguna eins og ég var að pæla. Það verður víst að vera nóg að koma um páskana.
Þannig að þið megið eiga von á fullt af myndum og allskonar skemmtilegheitum á næstunni !
En þangað til, smá myndir af litla krílinu
Fína lopapeysan
Varð bara að hafa þessa með þó hún væri algjörlega úr fókus, hún var bara að hlaupa svo svakalega hratt litla skottan !
Rosa gaman á harðahlaupum
Svo áttum við smá photosession að taka standi myndir, þetta var skársta myndin, og ég þarf klárlega að fá einhvern til að hjálpa mér.
Því þetta voru "the outtakes"
Og svo bara smá svona skemmtilegt af því að hún er svo sæt
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
flott blogg hjá þér :) en heyrðu mig langar í krufnigamyndir hehe... er álíka klikk og þú!
Kveðja úr snjóleysinu í ÁLó
híhí ég skal sýna þér þær myndir seinna, svona "in real life".
En það er kanski vert að nefna það að Snati minn, ég á sko restina af honum líka, nennti bara ekki að draga hana fram fyrir myndatökuna :Þ
Oh hvað hún Sól er sæt og greinilega mjög skemmtileg týpa....bara fínustu standimyndir miðað við að vera ein!
takk fyrir það :) Maður getur allavegana sett saman svona bestu hlutana úr nokkrum myndum til að sjá hennar bestu kosti :P En ég fæ einhvern til að hjálpa mér við þetta bráðlega, alltf gaman að eiga svona myndir seinna meir !
Haha, ég var orðin bara helviti vel þjálfuð í þennan "missa á gólfið"-leik með Zeldu þegar hún var lítil. Var ekki með athyglin á henni, var bara að horfa á tv. Og týndi upp tappan hennar svona 20 sinnum, svo lít ég upp og sér að hún er með glott dauðans, og skottið á fullu og ÝTIR tappan af brúnni með nebbanum og bíður svo spennt. :D
Skrifa ummæli