föstudagur, apríl 28, 2006

er alveg að fara að verða búin að lesa yfir mig

en smá léttleiki í tilefni dagsins, stal þessu

Að bera fé: Afklæða kind (eða að halda á kind)
Aflafé: Kindur sem stunda veiðiskap
Áhættufé: Fífldjarfar sauðkindur
Eigið fé: Kindur sem maður á sjálfur
Fégirnd: Afbrigðileg kynhneygð (Að girnast sauðfé)
Fégræðgi: Að vera einstaklega sólginn í sauðaket
Féhirðir: Smali
Félag: Lag sem samið er um sauðfé
Félagi: Sá sem leggur lag sitt við sauðfé
Félegur: Eins og sauður
Féleysi: Þegar skorið hefur verið niður vegna riðuveiki
Fjárdráttur: Samræði við kind
Fjárhagur: Einhver sem er afar laginn við sauðfé
Fjárhirslur: Geymslur fyrir sauðfé
Fjárlög: Mörg lög sem samin eru um sauðfé
Fjármagn: Þegar margar ær koma saman
Fjármál: Tungumál sauðkinda/jarm
Fjármálaráðherra: Yfirsmali
Fjármunir: Lausamunir í eigu sauðkinda
Fjárnám: Skóli fyrir kindur
Fjárplógsstarfsemi: Jarðyrkja þar sem sauðfé er beytt fyrir plóg
Fjársöfnun: Smalamennska
Fjárútlát: Þegar ærnar eru settar út á vorin
Fjárvarsla: Það að geyma kindur
Fjárveitingar: Þegar boðið er upp á sauðket í matarboðum
Fjáröflun: Smalamennska
Fundið fé: Kindur sem búið er að smala
Glatað fé: Fé sem ekki hefur komið aftur af fjalli
Grímsá: Kind í eigu Gríms
Handbært fé frá rekstri: Kindur sem menn hafa gefist upp á að reka og ákveðið að bera á höndum sér
Hlutafé: Súpukjöt
Langá: Einstaklega löng kind
Lausafé: Kindur sem eru lausar á afréttinum
Norðurá: Kind að norðan
Opnibert fé: Kindur í eigu ríkisins
Sauðburður: Þegar handbærar kindur eru bornar að á milli staða
Sparifé: Kindur sem ekki eru notaðar hversdags
Stofnfé: Fyrstu kindurnar sem maður eignast
Tryggingafé: Öruggt sauðfé
Veltufé: Afvelta kindur
Þjórfé: Drykkfelldar ær
Þverá: Þrjósk kind
Fjárvana: að vana hrúta


og þá er það meiri lestur ...

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ég hef semsagt því átt...
Áhættufé: Eigið fé: Féhirðir:
Fjármagn: Fjársöfnun: Fjárútlát:
Fjárvarsla:Fjáröflun: Fundið fé:
Glatað fé: Handbært fé frá rekstri:
Hlutafé: Súpukjöt: Lausafé:
Norðurá: Sauðburður: Stofnfé:
Tryggingafé: Veltufé: Þverá:

Vildi að ég ætti eitthvað af þessu enþá ; )