Við nýttum góða veðrið til að skella okkur austur og eyða helginni í sveitasælunni. Það var reyndar stór ástæða fyrir því að við fórum austur, en á 17 júní skelltum við okkur nefnilega í sveitina til að athuga hvort það væri komið folald. Viti menn, okkar beið lítill drengur, frekar nýlega fæddur. við tókum nokkrar myndir af honum um helgina, og hérna fáið þið að sjá í fyrsta sinn - Þorra frá Reykjavík.
Við völdum vandlega hestinn á þessa meri, þar sem að hún er að mörgu leyti rosalega góð, en hennar helsti löstur er slakur háls og að hún á rosalega erfitt með að kverka sig. Fyrir valinu varð Þokki frá Kýrholti, en hann hefur akkúrat hálsinn (hæfileikana og ýmislegt annað) sem við vorum að leita eftir. Ég reyndar þóttist vera nokkuð viss um að fá brúnt folald, þar sem móðirin er brún og undan brúnskjóttu og jörpu, faðirinn er brún, foreldrar hans eru brúnir... og það kom rauður hestur. Tvístjörnóttur meira að segja !
En við nánari skoðun get ég ekki sagt annað en að ég er rosalega hrifin af honum. En þið skuluð bara meta það sjálf hvaðan hann fékk hálsinn sinn ;)
Eigum við að ræða þennan háls eitthvað !
Skotturnar fengu náttúrulega að koma með í sveitina, og læddust inn á nokkrar myndir eða svo
Daddara, nú skal smalað !
Uppáhalds myndin mín af Flugu þennan daginn
Og svo var tækifærið gripið og leikið sé við Stubb
Eiginlega eina myndin af henni "standandi" 12 vikna
Og svo gerðust undur og stórmerki. Fluga samþykkti að leika sér við Dís, og fannst það bara nokkuð gaman að draga þetta hvolpaskott um grasflötinn.
En það eru fullt af fleiri myndum í myndaalbúminu ef þið viljið kíkja
þriðjudagur, júní 24, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Virkilega fallegur foli hjá ykkur. Til lukku enn og aftur með hann.
En ég verð að fá Dís til þess að tala við Móra og segja honum að hestar séu ekki svona hættulegir. Hún er rosalega flott í stóðinu :D
Já, það þarf nú að sannfæra Móra litla um að hestar séu í alvörunni ekki hættulegir :Þ En Dís finnst þeir bara áhugaverðir, soldið stórir, en mjög áhugaverðir. Og alveg þess verðir að fá koss á nefið ef þeir teygja sig niður til hennar híhí en hún sér ekki enn ástæðu til að smala þeim. En það kemur nú
Skrifa ummæli