föstudagur, október 10, 2008

~* Á maður ekki að vera bjartsýnn *~

Fékk þetta sent í pósti, og fannst alveg nauðsynlegt að sýna ykkur þetta :)


Ef þið hefðuð lagt 100.000 krónur í að kaupa hlutabréf Nortel fyrir einu
ári síðan væri verðmæti bréfanna í dag um 4.900 krónur.

Hefði sama fjárfesting verið lögð í Enron væri sú eign í dag um 1.650
krónur.

Hefðuð þið keypt bréf í World Com fyrir 100.000 krónur væri minna en 500
kall eftir.

Hefði peningurinn hins vegar verið notaður til að kaupa bjór fyrir einu ári
síðan þá hefði verið hægt að drekka hann allan og fara síðan með dósirnar í
endurvinnslu og hafa um 21.400 krónur upp úr því.

Þegar ofangreint er athugað virðist vera vænlegur kostur fyrir fjárfesta að
drekka stíft og endurvinna!


Always look on the Bright Side of Life !!!!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hahahaha... ÉG hló upphátt að þessu

Nafnlaus sagði...

nafnlaus heitir líka Þóra

Unknown sagði...

Híhí það var nú gott að þú varst ekki bara nafnlaus, ferlegt að heita ekki neitt :P